Sérfræðilæknir í augnlækningum með sérhæfingu í augnskurðlækningum
Við leitum eftir sérfræðilækni í augnlækningum til starfa við augndeild Landspítala. Viðkomandi þarf að hafa íslenskt sérfræðileyfi í augnlækningum og hafa reynslu af augnskurðlækningum. Reynsla í skurðaðgerðum á augasteini er æskileg auk reynslu í skurðaðgerðum vegna gláku, hornhimnusjúkdóma eða sjónhimnusjúkdóma. Möguleikar til frekari þjálfunar í augnskurðlækningum eru til staðar við deildina. Starfshlutfall er 80% og er starfið laust 1. september 2024 eða eftir samkomulagi.
Við augnlækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýjum starfsfólki og veitum góða aðlögun.
- Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinar, s.s. greiningar, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast undirsérgein sem og almennum augnlækningum
- Þátttaka í samráðkvaðningum og göngudeildarþjónustu
- Þátttaka í vaktþjónustu sérgreinar bæði á dagvinnutíma og gæsluvöktum
- Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna í samráði við yfirlækni
- Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
- Þátttkaka í teymisvinnu
- Íslenskt sérfræðileyfi í augnlækningum
- Sérfræðipróf í augnlækningum
- Reynsla af augnskurðlækningum
- Reynsla af kennslu- og vísindastörfum er æskileg
- Faglegur metnaður og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
- Samantekt á framkvæmdum skurðaðgerðum
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir