Deildarstjóri ræstingaþjónustu
Rekstrar- og mannauðsvið Landspítala leitar að öflugum deildarstjóra ræstingaþjónustu til að leiða metnaðarfullt starf, uppbyggingu og þróun deildarinnar sem fyrirhuguð er á næstu árum.
Ræstingaþjónusta Landspítala sér um að vinna eftir skipulagi sem tryggir að húsnæði spítalans (105.000 m2) sé til fyrirmyndar og gæði ræstinga séu í samræmi við skilgreind gæði. Deildarstjóri þarf að vera með einstaklingsvottun í þekkingarstigi 3 og 4 samkvæmt Insta 800 staðlinum, ásamt því að hafa setið námskeið viðurkennds aðila og framkvæmt skoðanir í hreinlætisstaðlinum DS 2451-10. Deildarstjóri vinnur náið með ræstingastjórum að daglegu skipulagi ásamt því að bera ábyrgð á daglegri ræstingu, áætlanagerð og heildarskipulagi hreingerninga ásamt framkvæmd skoðana í samræmi við staðlana.
Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni, getu til að stjórna breytingum og móta jákvætt starfsumhverfi. Viðkomandi þarf að búa yfir frumkvæði, drifkrafti og brennandi áhuga á að starfa með stjórnendum, starfsfólki og aðilum innan og utan spítalans að framþróun og umbótum í þjónustu sem styður við stefnu Landspítala.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi.
- Ábyrgð á faglegri þróun, starfsmannamálum og fjármálum deildarinnar
- Stuðla að virkum og góðum samskiptum við deildir spítalans og framúrskarandi þjónustu með öryggi og vellíðan sjúklinga og starfsfólks spítalans að leiðarljósi
- Tryggja árangursríkt samstarf og góð samskipti innan deildarinnar, skýrt verklag, gæði og fagmennsku
- Vinna með stjórnendum og starfsfólki að framþróun og umbótum í þjónustu, verklagi og umhverfi starfseminnar
- Stefnumótun deildarinnar, áætlanagerð og eftirfylgni
- Skipulag reglubundinna skoðana, sótthreinsiþrifa, eftirlit með verklagi og árangri
- Samskipti við verktaka/framkvæmdaraðila
- Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum á deild og sviði
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Jákvætt lífsviðhorf og lausnamiðuð nálgun
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Stjórnunarreynsla af sambærilegri starfsemi
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Krafa um að hafa unnið og framkvæmt skoðanir í ræstingum á sjúkrahúsi í samræmi við gæðastaðla Insta 800 og DS 2451-10
- Einstaklingsvottun í þekkingarstigi 3 og 4 samkvæmt Insta 800 staðlinum
- Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: deildarstjóri, stjórnunarstarf, ræstingaþjónusta,