Leit
Loka

Tilgangur og gildissvið

6. útgáfa Jafnlaunastefnu Landspítala samþykkt 10. júní 2025

Jafnlaunastefna er hluti af jafnlaunastjórnunarkerfi Landspítala og nær til alls starfsfólks. Starfsmaður er sá sem hefur gildandi ráðningarsamband við Landspítala. Kerfið nær ekki til verktaka.

Jafnlaunastefna

Landspítali greiðir laun í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga. Framkvæmdastjórar, eftir formlegu framsali valds frá forstjóra, fara með ráðningarvald og bera ábyrgð á öllum ráðningum sbr. yfirlýsingu forstjóra. (Yfirlýsing forstjóra).

Markmið Landspítala er að hæft og metnaðarfullt starfsfólk veljist til starfa. Launaákvarðanir skulu vera gagnsæjar og málefnalegar og byggja á kjara- og stofnanasamningum.

Mikilvægt er að laun taki mið af þeim kröfum sem starf gerir með tilliti til ábyrgðar, verkefna, álags og sérhæfni. Jafnframt þarf launasetning og stofnanasamningar að hafa að markmiði að starfsfólk Landspítala fái greidd jöfn laun og njóti sömu starfskjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

Laun skulu ákvörðuð í samræmi við kröfur sem störf gera óháð kyni. Landspítali leggur áherslu á að vera eftirsóttur vinnustaður, þekktur fyrir gott starfsumhverfi, samkeppnishæf kjör og góð samskipti. Jafnlaunastefnu Landspítala er ætlað að styðja við framtíðarsýn, heildarmarkmið og starfsáætlanir hverju sinni.

Jafnlaunastefna Landspítala felur í sér eftirfarandi skuldbindingar:

  • Starfandi er jafnlaunahópur sem skjalfestir og viðheldur með stöðugum umbótum vottað jafnlaunastjórnunarkerfi sem byggir á staðlinum ÍST-85.
  • Stuðla skal að stöðugum umbótum og forvörnum, með eftirliti og viðbrögðum við frávikum.
  • Flokka skal störf út frá þeim kröfum sem þau gera og framkvæma hið minnsta árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að athuga hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar.
  • Kynna skal starfsfólki niðurstöður launagreiningar sem er til úttektar nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því.
  • Fylgja skal lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem eiga við um jafnlaunastjórnunarkerfi. Lögfræðileg ráðgjöf skal vera aðgengileg stjórnendum Landspítala til að tryggja að þessum kröfum sé mætt. Staðfesta skal árlega hlítni við þær lagalegu kröfur og aðrar kröfur sem eiga við um kerfið.
  • Framkvæma skal innri úttekt á öllum útgefnum skjölum sem tilheyra jafnlaunastjórnunarkerfi eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.
  • Framkvæma skal rýni stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd.
  • Jafnlaunamál eru hluti af heildarstefnu
  • Jafnlaunastefna skal kynnt fyrir starfsfólki og gerð aðgengileg almenningi á vefsíðu Landspítala.

Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna Landspítala. Framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðssviðs ber ábyrgð á að stefnunni sé fylgt eftir og getur starfsfólk leitað til hans með athugasemdir eða sent fyrirspurnir á jafnlaun@landspitali.is 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?