Launastefna Landspítala
Tilgangur og gildissvið
4. útgáfa Launastefnu Landspítala samþykkt 20. febrúar 2024
Launastefna er hluti af jafnlaunastjórnunarkerfi Landspítala og nær til alls starfsfólks. Starfsmaður er sá sem hefur gildandi ráðningarsamband við Landspítala. Kerfið nær ekki til verktaka.
Launastefna
Launastefna er jafnframt jafnlaunastefna Landspítala. Framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðssviðs er ábyrgðarmaður launastefnu spítalans, jafnlaunakerfis og kjaranefnd spítalans er ábyrg fyrir innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012.
Landspítali greiðir laun í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga.
Framkvæmdastjórar, eftir umboði forstjóra, fara með ráðningarvald og bera formlega ábyrgð á öllum ráðningum sbr. yfirlýsingu forstjóra um framsal valds (Yfirlýsing forstjóra)
Markmið Landspítala er að hæft og metnaðarfullt starfsfólk veljist til starfa hjá spítalanum.
Launaákvarðanir skulu vera gagnsæjar og málefnalegar og byggja á kjara- og stofnanasamningum. Mikilvægt er að laun taki mið af þeim kröfum sem starf gerir til starfsmanns með tilliti til ábyrgðar, verkefna, álags og sérhæfni. Jafnframt þarf launasetning og stofnanasamningar að hafa að markmiði að starfsfólk Landspítala fái greidd jöfn laun og njóti sömu starfskjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Laun skulu ákvörðuð í samræmi við kröfur sem störf gera óháð kyni.
Í framtíðarsýn Landspítala er lögð áhersla á að spítalinn sé eftirsóttur vinnustaður, þekktur fyrir gott starfsumhverfi, samkeppnishæf kjör og góð samskipti. Launastefnu Landspítala er ætlað að styðja við framtíðarsýn, heildarmarkmið og starfsáætlanir spítalans hverju sinni.
Launastefna felur í sér eftirfarandi skuldbindingar:
- Starfandi er jafnlaunahópur sem hefur það verkefni að innleiða, skjalfesta og viðhalda með stöðugum, umbótum jafnlaunastjórnunarkerfi spítalans sem byggir á staðlinum ÍST-85:2012, þ.m.t. eftirfylgni með viðeigandi aðgerðum og viðbrögð við athugasemdum og frávikum, auk þess að vinna að forvörnum.
- Flokka skal störf út frá þeim kröfum sem þau gera og framkvæma hið minnsta árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að athuga hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar.
- Kynna skal starfsfólki niðurstöður launagreiningar sem er til úttektar nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því.
- Fylgja skal lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem eiga við um jafnlaunastjórnunarkerfið. Lögfræðileg ráðgjöf skal vera aðgengileg stjórnendum Landspítala til að tryggja að þessum kröfum sé mætt. Staðfesta skal árlega hlítni við þær lagalegu kröfur og aðrar kröfur sem eiga við um kerfið.
- Framkvæma skal innri úttekt á öllum útgefnum skjölum sem tilheyra jafnlaunastjórnunarkerfi eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.
- Framkvæma skal rýni stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd.
- Jafnlaunamál eru hluti af heildarstefnu Landspítala og launastefna er kynnt fyrir starfsfólki og gerð aðgengileg almenningi.
Framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðssviðs ber ábyrgð á að stefnu þessari sé fylgt eftir og getur starfsfólk leitað til hans með athugasemdir eða sent fyrirspurnir á jafnlaun@landspitali.is