Geislafræðingur óskast á geislameðferðardeild
Landspítali auglýsir starf geislafræðings á geislameðferðardeild laust til umsóknar.
Á deildinni fer fram geislameðferð krabbameinssjúklinga og undirbúningur hennar. Deildin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi og mikil þróun hefur verið í tækni og tækjabúnaði undanfarin ár.
Við leitum að öflugum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið krefst mikillar samvinnu og þverfaglegs samráðs.
Í boði er einstaklingshæfð aðlögun í samstarfi við reynda starfsmenn. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 80-100%, dagvinna.
- Vinna að undirbúningi geislameðferðar, m.a. við tölvusneiðmyndatæki deildarinnar
- Veita geislameðferð
- Taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu m.a. við tryggingu á nákvæmni meðferðarþátta
- Taka þátt í að innleiða nýja tækni og skilgreina verkferla
- Íslenskt starfsleyfi geislafræðings
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, teymisvinna