Sjúkraliði á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild
Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild 12G óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan sjúkraliða. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Um er að ræða vaktavinnu. Starfið er laust frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Hjarta-, lungna- og augnskurðdeild er 14 rúma legudeild sem tilheyrir hjarta-, æða- og krabbameinssviði og er staðsett á 2. hæð á Landspítala við Hringbraut. Hjúkrun skjólstæðinga deildarinnar er mjög fjölbreytt og krefjandi og snýr að sjúklingum sem farið hafa í aðgerðir vegna sjúkdóma í hjarta og lungum. Einnig sinnir deildin bráðainnlögnum sem tengjast brjóstholi og sjúklingum með augnsjúkdóma sem þarfnast innlagnar.
Á deildinni starfar áhugasamur hópur ýmissa starfstétta s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ritara, auk stoðstétta sem koma eftir þörfum s.s. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. Á deildinni er lögð áhersla á öryggi sjúklinga og starfsfólks, samvinnu teyma og stöðugar umbætur. Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju starfsfólki og veita góða og markvissa aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Bera ábyrgð á að framfylgja fyrirfram ákveðnum verkferlum fyrir sjúklinga sem farið hafa í hjarta-, lungna- og augnskurðaðgerðir
- Þátttaka í teymisvinnu
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi eða staðfesting á námi
- Reynsla af vinnu á deildinni er kostur
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
- Stundvísi
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun