Mats- og hæfisnefnd um starfsnám til að öðlast almennt lækningaleyfi og um sérnám í læknisfræði
Samkvæmt IV. kafla nýrrar reglugerðar nr. 856/2023, sem tók gildi þann 16. ágúst 2023 um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi skipar ráðherra fimm sérfræðilækna í mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna til fjögurra ára í senn. Tveir skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Læknafélags Íslands og einn til vara, einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu læknadeildar Háskóla Íslands og einn til vara, einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu framhaldsmenntunarráðs lækninga og einn til vara. Ráðherra skipar formann án tilnefningar. Nefndin skal kalla til sérfræðinga innan sérsviða læknisfræði, eftir þörfum.
Í 22. gr. reglugerðarinnar er tilgreint hlutverk og verkefni nefndarinnar, sbr. eftirfarandi:
- Samþykkja marklýsingar fyrir sérnámsgrunn skv. 18. gr. og sérgreinar skv. 21. gr.
- Meta hæfi heilbrigðisstofnana eða deilda innan þeirra til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnanir til að annast sérnám lækna, þ.m.t. sérnámsgrunn, sbr. 18. gr.
- Hafa eftirlit með sérnámi og kennslustofnunum eftir þörfum, eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Í þessu felst m.a. að tryggja að sérnám fari aðeins fram á viðurkenndum kennslustofnunum, samkvæmt marklýsingu og að handleiðarar hafi lokið og viðhaldið handleiðaraþjálfun.
- Útbúa gæðaviðmið fyrir:
a) gerð marklýsinga,
b) innleiðingu og framkvæmd sérnáms og
c) eftirlit með kennslustofnunum og sérnámi.
Þau verði í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið. - Fylgja eftir ákvörðunum sínum sem teknar hafa verið í samræmi við úttektir og gæðastýringu.
- Gera tillögur til ráðherra um hvaða sérgreinar sé boðið upp á sérnám í hér á landi og hvað þær skuli kallast.
- Skipuleggja og halda utan um númerakerfi fyrir sérnámslækna.
- Veita umsagnir sem krefjast faglegrar sérþekkingar nefndarinnar.
- Sjá til þess að handbók um framkvæmd sérnáms lækna sé gefin út og uppfærð reglulega og eftir þörfum, í samvinnu við framhaldsmenntunarráð lækninga.
Nefndin skal einnig endurskoða mat sitt á viðurkenndum kennslustofnunum og samþykktum marklýsingum á fjögurra ára fresti eða oftar ef tilefni er til. Nefndinni er heimilt að fela öðrum framkvæmd gæðaeftirlits með kennslustofnunum sérnáms á forsendum og ábyrgð nefndarinnar. Nánar er fjallað um viðurkenningu kennslustofnana sérnáms og veitingu samþykkis fyrir marklýsingu í 23. og 24. gr. reglugerðarinnar.
Embætti landlæknis samþykkir og birtir gæðaviðmið mats- og hæfisnefndar sem og handbók um sérnám lækna og birtir yfirlit yfir viðurkenndar kennslustofnanir sérnáms lækna, þ.m.t. sérnámsgrunns, ásamt samþykktum marklýsingum.
Mats- og hæfisnefnd skipa:
- Ólafur Baldursson, án tilnefningar, formaður
- Katrín Fjeldsted, tilnefnd af Læknafélagi Íslands
- Eggert Eyjólfsson, tilnefndur af Læknafélagi Íslands
- Anna Björg Jónsdóttir, tilnefnd af Framhaldsmenntunarráði lækninga
Starfsmaður nefndarinnar er Andrea Jónsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu
Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna er skipuð af heilbrigðisráðherra til fjögurra ára frá 19. mars 2024 til 18. mars 2028.
.
Varamenn:
- Engilbert Sigurðsson, tilnefndur af Læknafélagi Íslands
- Elínborg Bárðardóttir, tilnefnd af Framhaldsmenntunarráði lækninga
- Davíð O. Arnar, tilnefndur af Læknadeild Háskóla Íslands.
Starfsreglur mats- og hæfnisnefndar er að finna á vef heilbrigðisráðuneytis
Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra frá 19. mars 2024 til 18. mars 2028
Fullt sérnám:
- Marklýsing í almennum lyflækningum
- Marklýsing í barna- og unglingageðlækningum
- Marklýsing í bráðalækningum
- Marklýsing í geðlækningum
- Marklýsing í háls- nef- og eyrnalækningum
- Marklýsing í öldrunarlækningum
Hlutasérnám:
- Marklýsing í barnalækningum
- Marklýsing í bæklunarskurðlækningum
- Marklýsing í endurhæfingarlækningum
- Marklýsing í háls- nef-- og eyrnalækningum
- Marklýsing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
- Marklýsing í meinafræði
- Marklýsing í myndgreiningu
- Marklýsing í réttarlækningum
- Marklýsing í skurðlækningum
- Marklýsing í svæfinga- og gjörgæslulækningum
- Marklýsing í taugalækningum