Meltingar- og nýrnadeild
Sinnir sjúklingum með almenn læknisfærðileg vandamál, nýrnasjúkdóma og sjúkdóma í meltingarfærum
Guðrún Yrsa Ómarsdóttir (tímab.)
gudyrsa@landspitali.isEinar Stefán Björnsson)
einarsb@landspitali.isMargrét Birna Andrésdóttir
mband@landspitali.isHafðu samband
Hér erum við
Hringbraut - Aðalinngangur. 2. hæð í álmu E
Hagnýtar upplýsingar
- Sjúkdómar í meltingarfærum
- Nýrnasjúkdómar
- Almenn lyflæknisfræðileg vandamál
Sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, bráðalyflækningadeild eða gjörgæsludeild.
Legudeild með 19 rúmum.
Starfsmenn eru um 60 talsins.
Meðaldvalartími er um 7 dagar.
Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.
- Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring
- Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga
- Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn, allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
- Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00
- Stofugangur er kl. 09:00-11:00
- Heimsóknartímar eru 16:30 - 19:30 virka daga og 14:30-19:30 um helgar. Heimsóknir barna yngri en 12 ára eftir samkomulagi
- Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga
- Félagsráðgjafar veita ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat
- Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur
- Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði
- Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks
- Morgunverður um kl. 8:30
- Hádegisverður um kl. 12:00
- Miðdegiskaffi um 14:30
- Kvöldmatur kl. 17:30
- Kvöldkaffi um 19:30
- Starfsfólk aðstoðar við persónulega hirðingu eftir þörfum hvers og eins
- Á ganginum er kæliskápur fyrir sjúklinga
- Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljóðlausa hringingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma
- Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans.
- Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
- Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
- Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
- Hraðbanki er í anddyri á 1. hæð, sjálfsalar á 2. hæð og við inngang á bráðamóttöku
- Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga á Landspítala Hringbraut kl. 10:00 á fjórðu hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega
Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.
Við útskrift á sjúklingur rétt á að fá:
- Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna
- Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift
- Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift
- Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á
- Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er
Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nema í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.
Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.
Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.
Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis.
Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýringa.