Ítarefni vegna sumarlokunar Hjartagáttar (pdf)
Hjartagátt á Landspítala Hringbraut verður lokuð frá kl. 14:00 föstudaginn 6. júlí til kl. 08:00 föstudaginn 3. ágúst 2018. Á þessu tímabili flyst öll bráðamóttaka hjartasjúklinga á bráðadeild í Fossvogi.
Þetta á við um sjúklinga sem
- leita sjálfir til Landspítala með bráð einkenni frá hjarta.
- eru fluttir með sjúkrabíl með bráða brjóstverki og/eða önnur hjartatengd vandamál.
- leita til Landspítala samkvæmt tilvísun heilsugæslulækna eða vaktlækna utan spítalans.
Sumarlokunin verður með þeim hætti að frá og með föstudeginum 6. júlí kl. 14:00 verður bráðaþjónusta hjartasjúklinga veitt á bráðadeild í Fossvogi.
Undantekning á þessu er að á Hjartagátt við Hringbraut verður tekið á móti sjúklingum í hjartastoppi og þeim sem eru með STEMI (kransæðastífla með ST hækkun) fram til kl. 18:00 föstudaginn 6. júlí.
Að morgni föstudagsins 3. ágúst kl. 08:00 verður Hjartagátt opnuð með fulla starfsemi við Hringbraut.
Allt kapp verður lagt á að tryggja öryggi og góða þjónustu meðan á þessari tímabundnu lokun stendur.
Ef upp koma spurningar, ábendingar og/eða vafaatriði er velkomið að hafa samband við undirrituð:
- Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs – hlifst@landspitali.is
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs – gudrakel@landspitali.is
- Björg Sigurðardóttir deildarstjóri Hjartagáttar við Hringbraut – bjorgsig@landspitali.is
- Karl Andersen, yfirlæknir Hjartagáttar við Hringbraut – andersen@landspitali.is
- Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir bráðadeildar í Fossvogi – jonmkr@landspitali.is