Vökudeild: Nýbura og ungbarnagjörgæsla
Skjólstæðingar vökudeildar eru fyrirburar og aðrir veikir nýburar
Sigríður María Atladóttir
sigmaa@landspitali.isÞórður Þórarinn Þórðarson
ththorda@landspitali.isHafðu samband
Hér erum við
Barnaspítali Hringsins, 3. hæð.
Um vökudeild
Hagnýtar upplýsingar
Skjólstæðingar vökudeildar eru fyrirburar og aðrir veikir nýburar.
Einnig ungabörn upp að þriggja mánaða aldri sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Um 40% innlagðra barna eru fyrirburar, það er börn sem fædd eru fyrir 37 vikna meðgöngu.
Nýburar sem eru yngri en viku gamlir eru lagðir beint inn á deildina í stað þess að koma fyrst á bráðamóttöku barna.
Á vökudeild er einnig dagdeildarþjónusta. Þangað koma nýburar sem þurfa eftirlit í kjölfar erfiðrar fæðingar, sýklalyfjameðferðar, sonduskipta eða koma af öðrum ástæðum sem krefjast sérhæfðs eftirlits eða mats en ekki innlagnar yfir nótt.
- Árlegar innlagnir á vökudeild um 400 börn
- Tæplega 700 nýburar koma á dagdeild vökudeildar á ári hverju
- Deildin er alltaf opin fyrir foreldra
- Vegna sýkingarhættu af RS-veiru eru allar heimsóknir barna yngri en 12 ára bannaðar á vökudeild
- Öðrum gestum er heimilt að koma í heimsókn en aðeins í fylgd foreldis barnsins á heimsóknartímum milli kl. 15:00 og 20:00
Aðeins er heimilt að einn gestur sé á deildinni í einu auk foreldra og er ráðlegt að ekki komi margir á hverjum degi vegna smithættu.