Ávarp forstjóra
Upptaka af beinni útsendingu ársfundar á Facebook síðu Landspítala
Myndskeið frá ársfundi Landspítala 2022VIMEO):
Texti:
Gunnar Ágúst Beinteinsson framkvæmdastjóri:
Magnús Gottfreðsson yfirlæknir:
Öll viðtölin - hvert viðtal fyrir sig á einni síðu
- Davíð O. Arnar yfirlæknir hjartalækninga
- Viktoría Jensdóttir deildarstjóri rekstrarþjónustu
- Sólveig Sverrisdóttir deildarstjóri bráðadagdeildar
- Björn Jónsson, deildarstjóri heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar (HUT)
- Svanheiður Lóa Rafnsdóttir yfirlæknir
Ellefu einstaklingar voru heiðraðir og sex teymi á ársfundi Landspítala 13. maí 2022.
Heiðranir starfsfólks og hópa:
Lykiltölur Landspítala 2017-2021
Gröf: KLÍNÍSK STARFSEMI - REKSTUR - MANNAUÐUR - GRÆNT BÓKHALD
Hér fyrir neðan er fjöldi frétta í texta og myndskeiðum sem tengjast starfsemi Landspítala á árinu 2021 og birtust á vef spítalans.
Það er mikilvægt starfsemi á Landspítala að eiga stuðning og veljavilja fólks vísan. Á hverju ári færa einstaklingar eða fulltrúar fyrirtækja og stofnana spítalanum gjafir eða styrki af ýmsum toga. Allur þessi stuðningur, smár sem stór, vitnar um þennan hlýja og góða hug til Landspítala og kemur sér vel. Verðmæti gjafa og styrkja nemur hundruðum milljóna króna á hverju ári.
Hér er sagt frá nokkrum af þeim fjölmörgu gjöfum sem spítalanum voru færðar á árinu 2021. Það er líka hægt að styrkja starfsemina með því til dæmis að kaupa minningarkort eða styrkja hinu ýmsu sjóði á Landspítala.
Baráttan við heimsfaraldur COVID-19 einkenndi starfsemi Landspítala árið 2021. Í ársbyrjun var spítalinn á óvissustigi en enginn inniliggjandi með virkt smit, hins vegar 22 sem höfðu lokið einangrun. Nærri árslokum var spítalinn færður á neyðarstig og 21 sjúklingur var þá inniliggjandi með COVID-19, þar af 6 á gjörgæslu og 5 þeirra í öndunarvél.
Um mitt árið hafði Landspítali verið færður á hættustig eftir að faraldurinn var kominn í veldisvöxt. Það rofaði til í september og spítalinn fór á óvissustig en aftur á hættustig í nóvember.
Það mæddi mikið á mörgum í spítalastarfseminni vegna COVID-19 og farsóttanefnd / viðbragðsstjórn sendu frá sér fréttir og tilkynningar svo hundruðum skipti sem birtust á miðlum spítalans, þar á meðal upplýsandi efni í tölum, og gjarnan fylgdu með ljósmyndir Þorkels Þorkelssonar og myndskeið Ásvaldar Kristjánssonar til að lýsa ástandinu sem best.
COVID-19 fréttir á vef Landspítala 2021