Barnadeild
Barnadeildin er legudeild fyrir börn og leggjast þau þangað inn eftir tilvísun frá lækni. Á deildinni dvelja börn með ýmis heilbrigðisvandamál og sjúkdóma.
Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir
johahjor@landspitali.isRagnar Bjarnason
ragnarb@landspitali.isHafðu samband
Kynning barnadeildar
Hagnýtar upplýsingar
Á barnadeildinni er veitt sérhæfð læknis- og hjúkrunarþjónusta.
Börn að 18 ára aldri dvelja þar með ýmis heilbrigðisvandamál og sjúkdóma, svo sem krabbamein, sykursýki, hjartasjúkdóma, taugasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, meltingafærasjúkdóma, sýkingar og fleira. Einnig dvelja börn á barnadeildinni eftir ýmsar skurðaðgerðir.
Um 1.600 börn leggjast inn á barnadeildina á ári og er meðallegutími um 3,6 dagar.Flestar innlagnir á barnadeildina eru bráðainnlagnir þar sem börn eru lögð inn gegnum bráðamóttöku barna.
Stór hluti barna dvelur í lengri tíma vegna flókinna vandamála og erfiðrar meðferðar og eru það þá fyrirfram ákveðnar innlagnir.
Börn sem þurfa innlögn eftir aðgerðir í Fossvogi liggja á barnadeild, svo sem eftir:
- bæklunaraðgerðir
- háls-, nef- og eyrnaaðgerðir
- heila og taugaaðgerðir
- slys
Á barnadeildinni er góð aðstaða fyrir börnin að hafa foreldri hjá sér allan sólarhringinn.
Það er stefna deildarinnar að veita faglega og fjölskyldumiðaða þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi.
Þannig er hægt að komast í tölvupóstsamskipti, nota samskiptamiðla og vafra á Netinu.
Atriði sem vert er að hafa í huga við notkun á Internetinu:
|
Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi.
Börn og unglingar (heildarlisti)
- Aðgerð á gómi hjá barni
- Aðgerð á vör hjá barni
- Barnadeild - félagsráðgjöf til foreldra vegna skammvinnra veikinda eða slysa
- Berkjungabólga hjá börnum (RS vírus)
- Hryggspenging hjá barni
- Hægðatregða hjá börnum
- Krabbameinsmeðferð hjá barni - geislameðferð
- Krabbameinsmeðferð hjá barni - lyfjameðferð
- Krabbameinsmeðferð hjá barni - næring
- Missir barns - félagsráðgjöf til foreldra